Tilkynnt er um framkvæmd sem felst í því að fjarlægja millivegg milli eldhúss og stofu í íbúð 0403 mhl. 03 í húsi á lóð nr. 5 við Rekagranda. Greinagerð hönnuðar dags. 15. ágúst 2018 og samþykki meðeigenda fylgir erindi ódagsett. Gjald kr. 11.000
Svar
Afgreitt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Senda skal byggingarfulltrúa stutta lýsingu með upplýsingum um lok framkvæmdar sem skal árituð af þeim aðila sem sá um framkvæmdina.