Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við bílskúr og innrétta gróðurskála og vinnuherbergi í stækkuðum bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 24 við Kambsveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. september 2018. Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. nóvember 2018 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2018. Stækkun: 40 ferm., 110,6 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.