Sótt er um leyfi til að rífa núverandi kvisti og gera nýja og stærri kvisti, byggja sólstofu á austurhlið og breyta fyrirkomulagi efri hæðar sem og gluggasetningum á einbýlishúsinu á lóð nr. 17 við Melgerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 21. september 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. september 2018. Meðfylgjandi er bréf umsækjanda ódagsett. Stækkun: 107,7 ferm., 314,8 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.