Sótt er um leyfi til að opna milli eignarhluta 0104 og 0105 á efri hæð, byggja steyptan stiga úr rými 0101 upp á efri hæð, svalir á norðurhlið ásamt því að breyta innra skipulagi í rými 0101 og 0104 í hesthúsi nr. 5 á lóð nr. 1-7 í Almannadal. Erindi fylgir samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.