Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi þannig að sett verði upp förðunar- og kaffiaðstaða sem og framreiðslueldhús fyrir starfsfólk í 1. áfanga kvikmyndaversins við Áburðarverksmiðju Gufuness. Erindi fylgir brunahönnunarskýrsla frá Eflu, dags. 20.09.2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.