Sótt er um leyfi til að byggja milligólf í norðurenda með aðgengi úr verslun á 1. hæð húss nr. 8 við Faxafen á lóð nr. 15 við Skeifuna / nr. 8 við Faxafen. Umsögn brunahönnuðar dags. 27. mars. 2019 fylgir erindi. Stækkun: 121,7 ferm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.