Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjarlægja núverandi þak og byggja nýtt tvíhalla þak með kvistum á báðum hliðum ásamt því að stækka anddyri í húsi á lóð nr. 42a við Einarsnes.
Stækkun: 112,1 ferm., 82,0 rúmm.
Samþykki meðlóðarhafa dags. 07.11.2018 og 28.11.2018 árituð á teikningu fylgja erindi.
Gjald kr. 11.000