Sótt er um leyfi til að setja upp nýja snyrtingu í stað ræstingar, minniháttar breytingum á innri rýmum og áður gerðum breytingum þar sem þvottahús var flutt í geymslu í fjölnotarými leikskólans í húsi nr. 2 við Mururima. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.