Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta viðbyggingu við suðurhlið og byggja litla viðbyggingu á vesturhlið og koma þar fyrir snyrtingu og útigeymslu í húsi á lóð nr. 29 við Vesturgötu.
Stækkun: 2,4 ferm., 6,4 rúmm.
Umsagnir Borgarsögusafns dags. 30.10.2018 og Minjastofnunar Íslands dags. 22.10.2018 fylgja erindi ásamt samþykki aðliggjandi lóðarhafa áritað á teikningar.
Einnig útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. janúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfullltrúa dags. 11. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000