Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054827 með því að breyta innra skipulagi og brunavörnum og til að koma fyrir nýjum glugga sem verður björgunarop á húsi nr. 25 á lóð nr. 15-37 við Grandagarð. Bréf frá hönnuði um breytingar á erindi BN054827 dags. 27. nóvember og 17. desember 2018 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. í desember 2018 fylgir erindi. Einnig fylgir bréf Minjastofnunar Íslands dags. 10. janúar 2019. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.