Sótt er um leyfi til að byggja þrílyft fjölbýlishús úr krosslímdum timbureiningum með 6 íbúðum og einni vinnustofu á lóð nr. 34 við Nýlendugötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. janúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019. Stærð, A-rými: 509,2 ferm., 1.554 rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda og vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2019.