Sótt er um leyfi til að byggja fjölnota íþróttahús, með burðarvirki úr stáli, steyptum spyrnuveggjum og göflum og klætt að utan með sléttum steinullarsamlokueiningum, á svæði Íþróttafélags Reykjavíkur á lóð nr. 12 við Skógarsel. Stærð: 4.464,8 ferm., 57.411,7 rúmm. Erindi fylgir minnisblað Eflu dagsett 7. desember 2018 með útreikningum á orkuramma og brunahönnunarskýrsla Eflu dagsett 11. desember 2018 og hljóðvistargreinagerð Eflu dagsett 11. desember 2018. Uppfærð brunahönnunarskýrsla frá Eflu dagsett 8. janúar 2019. Gjald kr. 11.000
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.