Breyting í texta - BN048979
Arnarhlíð 2 01.62.950.2
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1006
29. janúar, 2019
Samþykkt
55619
55685 ›
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048979 þannig að í stað þrefalds glers að götu er í byggingarlýsingu kveðið á um Velfac Edge gluggakerfi í öllu húsinu á lóð nr. 2 við Arnarhlíð.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 20. desember 2018.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

102 Reykjavík
Landnúmer: 220839 → skrá.is
Hnitnúmer: 10106160