Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að innrétta lagersvæði í rými N milli mátlína 19 og 21, innrétta móttöku og skrifstofu við mátlínu A, þar er einnig gerður nýr millipallur með skrifstofu og kaffiaðstöðu starfsfólks og til að byggja hleðsluramp við suðurhlið húss á lóð nr. 2- 8 við Blikastaðaveg.
Bréf hönnuðar dags. 2. janúar 2019 og greinagerð brunahönnuðar dags. 21. desember 2018 fylgir erindi.
Stækkun: 94,5 ferm.
Gjald kr. 11.000