Dyr í vegg á lóðarmörkum
Grundarstígur 4 01.18.330.5
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1006
29. janúar, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að gera dyr í vegg á austur lóðarmörkum sem opnast út í Farsóttargarðinn við Þingholtsstræti 25 frá lóð nr. 4 við Grundarstíg.
Bréf frá hönnuði dags. 7. janúar 2019 og tölvupóstur frá Minjastofnun Íslands ódagsett fylgja erindi.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 21. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.

101 Reykjavík
Landnúmer: 101957 → skrá.is
Hnitnúmer: 10010982