Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta innra fyrirkomulagi og notkun rýma í matshluta 02, einnig er sótt um leyfi til að byggja 3. hæð ofan á núverandi hús sem og viðbyggingu við vesturhlið húss á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt.
Stækkun: 753,65 ferm., 2.747,0 rúmm.
Heildarstærð á lóð eftir stækkun: 3.764,2 ferm., 13.919,4 rúmm.
Erindi fylgir samþykki meðlóðarhafa á breytingu á deiliskipulagi, dags. 28. mars 2017. Einnig fylgir útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 9. nóvember 2018, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. nóvember 2018.
Gjald kr. 11.200 + 11.200