Fyrirspurn
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að stofna nýja lóð, Arnarhlíð 1A, samanber meðfylgjandi uppdráttur dagsettur 21.01.2019.
Ný lóð Arnarhlíð 1A (staðgr. 2.629.805, Lxxxxxx).
Lagðir 28 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (L221449).
Lóðin Arnarhlíð 1A (staðgr. 2.629.805, Lxxxxxx) verður 28 m² og fær landeignarnúmer samkvæmt ákvörðun byggingarfulltrúa.
Sjá deiliskipulagsbreytingu sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði þann 05.11.2014, samþykkt í borgarstjórn þann 02.12.2014 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 14.01.2015.