Sótt er um leyfi til að breyta gististað á 3. hæð úr flokki II í flokk IV tegund D og að breyta innra skipulagi sem felst í að koma fyrir bar við hliðina á móttöku, kaffistofu stafsmanna breytt í gestaeldhús og fækka stafsmannasalernum úr tveimur í eitt í húsinu nr. 172 á lóð nr. 170 -174 við Laugaveg. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.