Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft íbúðarhús úr timbri með einni íbúð sem viðbót við núverandi einbýlishús á lóð nr. 15 við Lágholtsveg.
Stækkun: 156,4 ferm., 899,1 rúmm.
Meðfylgjandi erindi er séruppdráttur vegna makaskiptaafsals, frá Mælingadeild Skrifstofu borgarverkfræðings, dagsett 28. júlí 1995.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 22. febrúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.200