Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að bæta við 3. hæð úr timbri ofan á núverandi steinsteypt hús, endurskipuleggja núverandi íbúðir og bæta við svölum á sitt hvora íbúðina á 2. hæð hússins á lóð nr. 10 við Fálkagötu.
Erindi fylgir umboð eiganda dagsett 12. apríl 2018, skýringarmyndir hönnuða dagsettar 17. ágúst 2017, útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. febrúar 2019 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. febrúar 2019.
Stækkun: 100,9 ferm., 209,9 rúmm.
Gjald kr. 11.200