Sótt er um leyfi til að byggja fernar svalir á suðurhlið og innrétta fjórar íbúðir á 2. og 3. hæð hússins á lóð nr. 76 við Hverfisgötu. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 28. janúar 2019 áritað á uppdrátt. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. febrúar 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019. Gjald kr. 11.200