Sótt er um að hækka þak og byggja kvisti til norðurs og suðurs ásamt því að innrétta íbúðarrými í risi, reisa viðbyggingu á tveimur hæðum til suðurs ásamt svölum fyrir 2. hæð og svölum á þaki viðbyggingar aðgengilegum úr risi íbúðarhúss á lóð nr 6 við Hólmgarð. Um er að ræða tveggja hæða íbúðarhús með tveimur íbúðum og sérinngangi. Samliggjandi er samhverft hús á lóð nr 8 og er verið að sækja um samskonar breytingu á því húsi. Erindi fylgir óþinglýst yfirlýsing og kvöð um samþykki eigenda Hólmgarðs 6 og 8 dags. október 2018. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.