Sótt er um að hækka þak og byggja kvisti til norðurs og suðurs jafnframt því að innrétta íbúðarrými í risi, reisa viðbyggingu á tveimur hæðum til suðurs ásamt svölum fyrir 2. hæð og svölum á þaki viðbyggingar, aðgengilegum úr risi íbúðarhúss á lóð nr 27 við Hólmgarð. Um er að ræða tveggja hæða íbúðarhús með tveimur íbúðum með sérinngangi. Samliggjandi er samhverft hús á lóð nr 25 og er verið að sækja um samskonar breytingu á því húsi. Erindi fylgir þinglýst yfirlýsing og kvöð um samþykki eigenda Hólmgarðs 25 og 27 dags. 30.október 2018. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.