Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með aukaíbúð á neðri hæð, steinsteypt, einangrað að utan og klætt gráum leirflísum á lóð nr. 11 við Gerðarbrunn. Stærð, A-rými: 360,3 ferm., 1.374,9 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.