Sótt er um leyfi til að stækka vinnustofu sem nemur inndregnum svölum á vesturgafli, byggja nýjar svalir utan á gaflinn, breyta og bæta við gluggum og hurðaopum auk innanhússbreytinga í einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Tjarnarsel. Með erindi fylgja mæliblað 4.930.3 dags. 14.07.1977 síðast breytt 08.02.2006 og hæðarblað teiknað í júlí 1977. Vísað er í tölvupóst frá hönnuði dags. 22. febrúar 2019 með fylgiskjölum sem útskýra breytingar frá samþykktum aðaluppdráttum. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.