Sótt er um leyfi til að gera op milli rýma 0003 í húsi nr. 8 og 0001 í húsi nr. 6 í hóteli á lóð nr. 8 við Aðalstræti. Erindinu fylgir umsögn burðarþolshönnuðar dags. 13. febrúar 2019, bréf hönnuðar dags. 12. febrúar 2019 og 26. febrúar 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.