Sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús með auka íbúð og innbyggðum bílskúr úr CLT krosslímdum timbureiningum á staðsteyptum grunni á lóð nr. 4 við Döllugötu. Stærðir: A-rými: 344.4 ferm., 1.431.0 rúmm. B-rými: 3.9 ferm. Nýtingarhlutfall: 0.50 Erindi fylgir lóðablað 5.113.7 dags. 21. febrúar 2008 og hæðablað Reynisvatnsás, Döllugata 2-10 og Gissurargata 1-7 dags. 11. mars 2008. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.