Sótt er um leyfi til að flytja friðað timburhús um lengd sína til suðurs á nýjan steinsteyptan kjallara, endurgera og innrétta tvær íbúðir og til að rífa, endurbyggja og stækka steinhús sem fyrir er á lóð og innrétta átta íbúðir á lóð nr. 27 við Bergstaðastræti. Erindi fylgir greinargerð hönnuðar dags. 25. febrúar 2019, greinargerð um hita- og rakaástand, minnisblað um burðarvirki og lagnir dags. 22. febrúar 2019 og minnisblað um hljóðvist dags. 22. febrúar 2019. Eftir stækkun, mhl. 01, A-rými: 172,3 ferm., 514,8 rúmm. Mhl. 02, A-rými: 640,1 ferm., 1.946,2 rúmm. B-rými: 17,7 ferm., 49,6 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.