Sótt er um leyfi til að lækka gólf um 50 cm og breyta innra skipulagi ósamþykktrar íbúðar í kjallara í húsi nr. 13 á lóð við Baldursgötu 13 og Óðinsgötu 25. Stækkun: 0.0 ferm., 28.3 rúmm. Erindi fylgir samþykki meðeigenda í húsi nr. 13 við Baldursgötu og Óðinsgötu 25, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. mars 2019 og tölvupóstur frá eiganda dags. 08. apríl 2019. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.