Breyting á brunavörnum í erindi BN047643.
Frakkastígur 8 01.17.210.9
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1023
4. júní, 2019
Samþykkt
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047643 þannig að texta um brunavarnir er breytt, leiðarlýsing (út-skilti) við dyr úr bílakjallara að stigahúsi gistiheimilis við Laugaveg er tekið út og staðsetningu inndælingarstúts stigleiðslu við hús nr. 8D er breytt á lóð nr. 8 við Frakkastíg.
Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 19. mars 2019 og tvær óstimplaðar teikningar í stærð A3 sem sýna breytingar frá fyrra erindi.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.