Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu, einangrað að utan og klætt múrkerfi á lóð nr. 3 við Gerðarbrunn. Erindi fylgir bréf hönnuðar varðandi frávik frá deiliskipulagi dags. 4. apríl 2019. Stærð, A-rými: 206,2 ferm., 678,9 rúmm. B-rými: 18 ferm., 57,6 rúmm. Samtals: 224,2 ferm., 783,8 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.