Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að fjarlægja tröppur á bakhlið 1. hæðar, byggja svalir í þeirra stað og breyta aðkomu að kjallara ásamt því að gerð er grein fyrir innra skipulagi allra hæða fjölbýlishúss á lóð nr. 5 við Lokastíg.
Erindi fylgir þinglýstur eignaskiptasamningur innfærður 6. janúar 1994, samþykki meðeigenda, samþykki eigenda Lokastígs 3 og 7 og Skólavörðustígs 22 og 22A og þinglýst afsal innfært 3. febrúar 2014. Skýrsla um íbúðaskoðun dags. 4. júní 2019.
Gjald kr. 11.200