Sótt er um leyfi til að lengja hús um tvo metra til norðurs, byggja viðbyggingu við suðurhlið, setja kvisti á norðausturhlið, svalir á suðausturhlið auk þess að útbúa aðgengi frá kjallara og eldhúsi út á lóð einbýlishúss á lóð nr. 196 við Langholtsveg. Stækkun: 142,8 ferm., 236,4 rúmm. Erindi fylgir mæliblað nr. 1.445.3. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.