Tjarnargata 9 - Skrifstofuhús fyrir starfsemi Alþingis
Alþingisreitur 01.14.110.6
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 5 árum síðan.
Málsaðilar
Byggingarfulltrúi nr. 1026
25. júní, 2019
Samþykkt
56197
56353 ›
Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja skrifstofuhús fyrir starfsemi Alþingis, með aðstöðu fyrir fundahöld, móttökur og ráðstefnur á Alþingisreit.
Jafnframt er erindi BN054133 dregið til baka.
Erindi fylgir brunahönnun frá Eflu dags. 24. janúar 2018, hljóðvistargreinargerð frá EFLU dags. 29. mars 2019, yfirlýsing frá EFLU dags. 26. janúar 2018 og bréf hönnuðar dags. 8. maí 2019.
Stærð, mhl. 07, A-rými: 6.153,8 ferm., 24.432,3 rúmm.
B-rými: 143,2 ferm., 604,1 rúmm.
Gjald kr. 11.200
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.