Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN054285 þannig að m.a. verði bætt við gluggum í eldhúsum tveggja íbúða og aðkomudyrum efstu íbúða fjölgað út á afgirt þaksvæði með öryggishandriðum, gluggar færðir til í eldhúsum nokkurra íbúða, skilveggjum á svölum og innveggjaþykktum breytt sem og gluggar í tveimur hjónaherbergjum fjarlægðir í húsi á lóð nr. 103a við Hraunbæ. Erindi fylgir minnkað afrit af teikningum hönnuða með afmörkun á umbeðnum breytingum og bréf hönnuðar dags. 24. júní 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.