Sótt er um leyfi til að breyta hurðum, síkka glugga og hækka bílskúr við einbýlishús á lóð nr. 74 við Langagerði. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júlí 2019 fylgir erindi. Stækkun: 19,9 rúmm. Erindi fylgir samþykki nágranna á uppdráttum 05-01 og 05-02 dags. 22. mars 2019, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. október 2019, bréf frá hönnuði dags. 25. október 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til skipulagsfulltrúa í grenndarkynningu. Vísað til uppdrátta 0501, 0502, dags. 22. mars 2019 og 0503 dags. 30. september 2019.