Sótt er um leyfi til þess að klæða norðvestur gafl og suðvestur- og norðausturhlið, með sléttri álklæðningu, setja opnanleg gluggafög í stigagang og íbúðir á norðvesturhlið, breyta veltigluggum, setja svalahurðir í stað glugga á suðvesturhlið jarðhæðar ásamt því að skipta steyptum svalahandriðum út með léttum ál-gler handriðum á fjölbýlishúsi nr. 70-72 á lóð nr. 70-86 við Engjasel. Erindi fylgir umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24. júni 2019, dagskrá, mætingarlisti og fundargerð frá fundi Húsfélags Engjasels 70-72 dags. 9. mai 2019, og umboð íbúðareiganda dags. 5. mai. 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.