Fyrirspurn
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðarinnar, Arnarhlíðar 2, afleggja þrjár djúpgámalóðir og stofna þrjá nýja djúpgámaskika sem hluta af lóðinni Arnarhlíð 2, í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti sem eru dagsettir 09.08.2019.
Lóðin Arnarhlíð 2 (staðgr. 1.629.502, L220839) er 6655 m².
Bætt 164 m² við lóðina frá óútvísaða landinu (L221448).
Teknir 142 m² af lóðinni og bætt við óútvísaða landið.
Bætt 27,5 m² skika við lóðina frá óútvísaða landinu (landeignarnr. L221448). Skikinn fær staðfangið Fálkahlíð 1A.
Bætt 27,5 m² skika við lóðina frá óútvísaða landinu (landeignarnr. L221448). Skikinn fær staðfangið Valshlíð 12A.
Bætt 27,5 m² skika við lóðina frá óútvísaða landinu (landeignarnr. L221448). Skikinn fær staðfangið Smyrilshlíð 13A.
Leiðrétt um -0,5 m² vegna fermetrabrota.
Lóðin Arnarhlíð 2 (staðgr. 1.629.502, L220839) verður 6759 m². og samanstendur af lóðinni Arnarhlíð 2 sem er 6677 m² og lóðaskikunum, Fálkahlíð 1A sem er 27,5 m², Valshlíð 12A sem er 27,5 m² og Smyrilshlíð 13A sem er 27,5 m².
Lóðin er Arnarhlíð 2A (staðgr. 1.629.503, L223262) er 21 m².
Teknir 21 m². af lóðinni og bætt við óútvísaða landið (L221448).
Lóðin verður 0 m² og verður lögð niður.
Lóðin Arnarhlíð 2B (staðgr. 1.629.504, L223263) er 21 m².
Teknir 21 m² af lóðinni og bætt við óútvísað land (L221448).
Lóðin verður 0 m² og verður lögð niður.
Lóðin Arnarhlíð 2C (staðgr. 1.629.505, L223264) er 42 m².
Teknir 42 m².af lóðinni og bætt við óútvísað land (L221448).
Lóðin verður 0 m² og verður lögð niður.
Sjá deiliskipulagsbreytingu sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 05.11.2014, samþykkt í borgarráði þann 02.12.2014 og auglýsta í B-deild Stjórnartíðinda þann 14.01.2015.ann