Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja 5 hæða steinsteypt hús auk kjallara með bílageymslu og stoðrýmum, á 1. hæð verður verslun og þjónusta en 10 íbúðir á 2. - 5. hæð húss á lóð nr. 73 við Laugaveg.
Erindi fylgir ósamþykktur lóðauppdráttur nr. 1.174.0 dags. 28. nóvember 2017 og hæðablað dags. 18. júlí 2017, Skýringar hönnuðar dags. 26. september 2019, viljayfirlýsing eigenda að Hverfisgötu 92 - 94 dags. 26. september 2019, Mannvit -skýrsla um sambrunahættu dags. 26. september 2019, hljóðvistarskýrsla dags. 26. september 2019.
Gjald k. 11.200