Sótt er um leyfi til þess að bæta við tveimur kvistum á norður- og suðurhlið ásamt svölum og stiga niður í garð á 1. hæð í fjöleignarhúsi á lóð nr. 22 við Langagerði. Erindi fylgir afrit af eldri teikningum samþykktum 27. nóvember 1980 og fyrirspurnarteikningum dags. 24. apríl 2019. umboð eigenda íbúðar 01-0101 dags. 23. september 2019 og samþykki meðlóðarhafa áritað á A3 afrit af teikningum A-100 - A-101 dagsettum 3. september 2019. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. október 2019 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019. Stækkun: 3.6 ferm., 10.1 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 18. október 2019 og til athugasemda.