Sótt er um leyfi fyrir steyptri viðbyggingu við Gamla Garð sem í verða 69 einstaklingsherbergi/hótelherbergi og samkomusalur fyrir 65 manns, auk þess verða sameiginleg eldhús og geymslur í húsi á lóð númer 29-31 við Hringbraut. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 15. apríl 2019, greinagerð hönnuðar um aðgengi dags. júlí 2019, greinagerð Trivium nr. I vegna hljóðvistar dags. júní 2019, brunahönnun Mannvit dags. 10. september 2019. Stærð nýbyggingar: 3.309,7 ferm., 11.217,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Vísað til athugasemda. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.