Sótt er um leyfi til að fjölga eignum þannig að lokahúsi verður skipt í dreifistöð og borholuhús á lóð nr. 100 við Strípsveg. Erindi fylgir staðfesting Veitna á þurrspennum í dreifistöð við Vatnsendakrika dags. 26. febrúar 2020. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.