Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi veitingarstað í fl. II tegund veitingastofa fyrir 30 gesti og koma fyrir loftræsistokki frá háfi í eldhúsi á jarðhæð, upp fyrir þakbrún, á húsi á lóð nr. 30 við Laugaveg. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 19. desember 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.