Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN055490 þannig að eignarhaldi á palli, tröppum og ljósgryfjum er fært úr sameign í eignarhluta 0201 og sérafnotaréttur íbúða á lóð er skilgreindur vegna gerðar eignaskiptasamnings fyrir sambýlishús á lóð nr. 37 við Rauðagerði. Erindi fylgir mæliblað 1.821.3 endurútgefið 9. maí 2011. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verði þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.