Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að reisa dælustöð úr járnbentri steinsteypu á lóð nr. 15a við Naustavog.
Erindi fylgir greinagerð hönnunarstjóra dags. 19. nóvember 2019 og lóðauppdráttur nr. 1.456.2 dags. 4. nóvember 2019. Einnig bréf hönnuðar dags. 10. febrúar 2020, minnisblað um hljóðstig frá skólpdælustöð frá Verkís dags. 18. september 2019, minnisblað Verkís um sprengihættu dags. 11. janúar 2020.
Stærð: 459,9 ferm., 3.330,3 rúmm.
Gjald kr. 11.200