Sótt er um leyfi til að byggja nýja forstofu við norðurinngang, lengja aðaltröppur, bæta við glugga til vesturs, síkka glugga á suðurhlið kjallara, gera útskotsglugga á austurhlið, með hurðum út á nýjan sólpall, skipta um klæðningu á þaki, taka niður núverandi skorstein og setja upp nýjan fyrir arinn og endurgera steypta veggi að götu í sömu mynd og fyrir eru á einbýlishúsalóð nr. 10 við Sólvallagötu. Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 20. desember 2019, umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 9. desember 2019, umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 3. desember 2019. Stækkun: 3,1 ferm. 45.3 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Er í skipulagsferli, uppfærðum teikningum vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.