Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051113 þannig að húsið, sem er gististarfsemi í flokki IV, tegund hótel, hækkar um eina hæð og verður 6 hæðir, gistiherbergjum fjölgar úr 78 í 97 og með því fjölgar gestum úr 156 í 194, fjöldi starfsfólks er áætlaður 10-13 manns samtímis yfir daginn, í húsi á lóð nr. 1 við Skipholt. Erindi fylgir afrit af ósamþykktum teikningum, frá hönnuði, með yfirliti yfir breytingar, bréf hönnuðar dags. 16. desember 2019, samþykki nágranna vegna flóttastiga við lóðamörk dags. 1. mars 2018, bréf hönnuðar um stækkun húss og bílastæðabókhald dags. 15. desember 2019, Greinagerð Lotu vegna burðarþolshönnunar ódags. og ódags. teikningaskrá hönnuðar yfir aðaluppdrætti. Einnig bréf hönnuðar dags. 15. janúar 2020 og afrit af samþykktum teikningum með yfirliti yfir breytingar. Stækkun: xx,xx ferm., xx,xx rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.