Sótt er um leyfi til að byggja tvílyft staðsteypt parhús með innbyggðum bílskúr á lóð nr. 10-12 við Urðarbrunn. Erindi fylgir orkurammi dags. 2 janúar 2020 og greinargerð hönnuðar dags. 8. janúar 2020. Stærð húss er: 399.7 ferm., 1.317,5 rúmm. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.