Sótt er um leyfi til að stækka svalir á fyrstu og annarri hæð, setja á þær handrið, koma fyrir tveimur þakgluggum á suðurhlið, tveimur á norðurhlið og einum á austurhlið, koma fyrir dyrum úr stofu kjallaraíbúðar út í garð á suðurhlið, sambærilegar við svaladyr á hæðum fyrir ofan, yfirborð garðsins er lækkað fyrir framan dyrnar auk þess sem gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi íbúða, í hús á lóð nr. 43 við Barmahlíð. Gjald kr. 11.200
Svar
Frestað. Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.