Sótt er um leyfi til þess að staðsetja fimm djúpgáma við fjölbýlishús á lóð nr. 19 við Hallgerðargötu. Erindi fylgir bréf hönnuðar sem skýring á undirritun aðaluppdrátta dags. 27. janúar 2020. Gjald kr. 11.200
Svar
Samþykkt. Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.